|
Eldra efni Tenglar
|
Blogg17.3.2010Afmælisbarn dagsins!Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Pálmi, hann á afmæli í dag. Já kappinn er víst 28 ára í dag, og ég er ekki frá því að yfirvaraskeggið sem vex framan í honum þessa dagana geri hann eldri en hann er ![]() Til hamingju með daginn gamli minn 11.3.2010Það er allt að gerast!Það kom að því að kellingin á heimilinu gerði eitthvað af viti! Búin að setja inn myndir úr ferðalaginu, og þær eru sko ekki fáar. En ég setti ekki inn allar myndirnar sem teknar voru í ferðinni enda voru þær nálægt þúsund :) ![]() ![]() ![]() ![]() og að lokum bjó ég til albúm þar sem ég ætla að setja inn myndir af vaxandi bumbunni. ![]() Þarna hefur hann/hún dvalið í 26 vikur. 5.2.2010Maron Fannar 7 áraHann Maron Fannar er 7 ára í dag!! Mér finnst eins og hann hafi fæðst í gær!! já tíminn er sko fljótur að líða! Þessi mynd var tekin af þeim frændum, Jónsa og Maroni þegar Maron var 14 mánaða! ![]() Hann hefur nú stækkað töluvert síðan! Eins og sést þá var hann tannlaus í október á síðasta ári. ![]() Áður en við fórum út sýndi Maron okkur hvernig NY er því að hann vissi allt um það af því að Spiderman á sko heima þar! Hann sýndi okkur í nýja Spiderman leikum allt sem við þurftum að sjá og skoða.. Það er bara vonandi að Spiderman passi okkur meðan við erum þarna. Elsku Maron Fannar,innilega til hamingju með 7 ára afmælið okkur finnst mjög leiðinlegt að geta ekki verið í afmælinu þínu en við hugsum til þín hérna í New York þar sem Spiderman á heima! 4.2.2010Methuen-Boston-New YorkGóðan daginn kæru lesendur! Í dag er komin vika síðan við yfirgáfum landið okkur fagra! En það er líka bara 4 dagar þangað til við komum aftur á landið okkar fagra! Ekki það að ég sé farin að telja niður dagana.. það er búið að vera alveg frábært hérna hjá okkur :) Þegar þetta er skrifað erum við ennþá hjá Heiðu.. það er svo gott að vera hérna að við tímum ekki að fara... Við ætluðum að vera á hóteli í Boston en okkur langaði bara meira að vera hér. En tengdaforeldrar hennar Heiðu voru svo æðislegir að lána okkur bíl þannig að við erum búin að vera keyra hér um allt með GPS tækið hennar Heiðu og erum orðin ótrúlega flinka að fara eftir því og það er bara mesta furða hvað við höfum villst lítið ;) hehe.. Hvert var ég komin í síðasta bloggi... á sunnudaginn fórum við með Heiðu og strákunum á ströndina! Theo ( 4 ára) vildi nú bara fara í strandbolta og leika sér á ströndinni þegar við sögðum honum hvert við værum að fara.. en þegar við komum á ströndina fannst honum heldur kalt í svoleiðis leiki en þeim fannst rosalega gaman að leika sér við öldurnar og það munaði nú ekki miklu í nokkur skipti að hún myndi ná þeim ;) En þegar við komum heim af ströndinni fóru Heiða, Ben og strákarnir að heimsækja afann á hjúkrunarheimilið en við Pálmi fórum í fyrsta skipti út að keyra hérna!! og það gekk bara svona líka vel ;) tókum nokkrar vitlaustar beyjur en GPS tækið kom okkur samt heim að lokum ;) Á mánudaginn var svo búðardagurinn mikli og langi! frá 10 am til 9 pm.. en það var samt ekkert mikið verslað.. það fór dálítill tími í að keyra á milli verlsana.. sérstaklega langur tími fór í að finna REI (útivistarbúð).. því að við fundum hana í GPS tækinu og ákváðum að fara eftir því og keyrðum og keyrðum!! en við enduðum í einhverju íbúðahverfi langt héðan í burtu!! hehe.. þannig að það er nú kannski ekki alveg að marka það sem GPS tækið segir :) Á þriðjudaginn skelltum við okkur til Boston! já.. ekki vandamálið að keyra þangað enda rataði GPS tækið ;) Við lögðum bílum í bílastæðahúsi við eikkað moll og geymdum hann þar allan daginn.. Við tókum svo lestina niður í bæ og röltum þar í smá stund.. Harpa, það var risastór jólabúð þar og auðvitað fór ég inn í hana.. en allt jóladótið var of amerískt fyrir mig!! hehe.. þetta var samt hrikalega flott en ekkert jafnast á við jólahúsið okkar ;) Við ákváðum svo að vera ekta túristar og fórum í þartilgerða túristarútu! En við fórum samt ekki allan hringinn heldur hoppuðum út á miðri leið og tókum lestina í bílinn okkar aftur og brunuðum heim :) Nú þá er kominn miðvikudagur.. Nú þar sem ég er stórgölluð þá er alltaf eikkað að mér og auðvitað gat ég ekki annað en farið til læknis í Ameríku! maður verður að prófa allt!! hehe.. en nei það kom nú ekki til að góðu.. fékk varaþurrk sem endaði í einhverju rugli (var orðin eins og trúður í framan!).. en súper amman kom og reddaði okkur.. Amma strákana er að passa Theo á miðvikudögum og hún er sannkölluð súper amma!! hún snaraðist með okkur á svona Walk Inn og kom mér undir læknishendur þar sem hann sagði eikkað rosalega langt og flókið útlenskt orð þá vitum við ekkert hver sjúkdómsgreiningin var en ég fékk eikkað krem. Ekki höfðum við heldur séð þetta krem þannig að ég sendi læknaritaranum mínum (Hörpu litlu) sms og bað um upplýsingar sem ég fékk um hæl ásamt ráðleggingum frá Dr. Gunnari. Þetta var sem sagt sterakrem :) En þetta er allt á réttri leið og trúðamunnurinn að hverfa... En eftir þetta kíktum við i heimsókn í vinnuna til Heiðu, þar sem hún sýndi okkur hvað hún er að gera í sinni vinnu. Við komumst sem sagt að því að hún er að búa til öll heimsins bragðefni til að blekkja okkur ;) hehehe... hún gerir bragðefni í Oreo kexið okkar og líka súkkulaði bragðið í Gevalia instant kaffi og bara það sem hugurinn girnist! Pálmi bara að biðja hana um að gera svona bjór bragðefni, hún yrði pottþétt rík á því ;) Áfram héldum við svo til Boston og vorum í 4 tíma í Museum of science.. það var rosalega flott.. þar sem klukkan var orðin svo margt þegar við komum þaðan út þá fórum við aftur heim :) Í dag er kominn fimmtudagur og við ennþá hjá Heiðu :) En við erum að fara til New York í dag. Margret (sú sem við ætlum að gista hjá í NY) er hérna í nágrenninu á bíl þannig að við ætlum að keyra með henni einhvern tímann í dag. Smá fréttir af mér og kisa! Við erum ennþá bestu vinir eða öllu heldur er hann besti vinur minn!! og notar hvert tækifæri til að hoppa upp í fangið á mér og koma sér vel fyrir.. ég reyni mitt besta í að vera almennileg við hann því að ég er jú gestur hérna ;) En meira hef ég ekki að segja í bili og líklega verður næsta blogg skrifað i New York. 31.1.2010Dagur 2 og 3 i MethuenGoda kvoldid! Ta er dagur 3 ad kveldi kominn herna i Methuen... Vid dveljum i godu yfirlaeti hja Heidu, Ben, Alexander og Theo. Tau eru buin ad vera med okkur i skodunar og utsynisferdum sidan vid komum til teirra :) I gaer foru heida og strakarnir med okkur til ad syna okkur hvar Mollid og budirnar eru sem vid aetlum i a manudaginn (mjog naudsynlegt ad vita tad!!).. og i dag forum vid til Salem sem er nornabaer herna daldid fra okkur. Vid keyrdum svo til Marblehead (held ad tad heiti tad!!!) og keyrdum einn hring i milla hverfinu ! Vid bordudum hadegismat i Amerikan Diner, mjog ameriskur stadur! Myndir af tvi sidar :) A morgun verdur aframhald af utsynisferdum ;) Vid erum ad na ad snua solarhringnum vid.. dagurinn i gaer var eins og vid vaerum tunn!! hehe.. en vid logdum okkur tegar vid komum heim ur mollinu og nadum ta ad laga tetta adeins.. Bumbubuinn er lika ad verda buinn ad snua solarhringnum vid.. Tegar vid erum heima ta eru fotboltaaefingar um 8 a kvoldin en um midjan dag i gaer for allt a fullt!! En nuna er klukkan herna rumlega 8 og aefingar eru hafnar! hehe... tannig ad allir eru hressir og spraekir! Vid bidjum ad heilsa i bili :) Erum ad fara horfa a Gremlings med Heidu, Ben, Alexander og Theo ;) p.s. eg veit ad tid eigid erfitt med ad trua tessu en eg (Erla) hef eignast nyjan vin herna og tad er KISI!! ja.. einhverra hluta vegna finnst honum eg mjog skemmtileg! Hann er buinn ad eigna ser rumid okkar tegar vid erum ekki heima.. og adan tegar eg la upp i rumi ad lesa hlunkadist hann uppi til min! Uff hvad mer bra! tetta er enginn kettlingur en hann er nu samt ekki eins stor og Bambi eda Gestur! En hann er ameriskur og tvi er edlilegt ad hann se med hamborgara rass ;) hehe.. Flettingar í dag: 12 Gestir í dag: 3 Flettingar í gær: 50 Gestir í gær: 17 Samtals flettingar: 118431 Samtals gestir: 42245 Tölur uppfærðar: 19.3.2010 12:52:01 |
...Erla & Pálmi...









