Blogg

23.3.2008

Gleðilega páska!

Fyrst af öllu vil ég benda ykkur á að Pálmi var að setja nýjar myndir inn í myndaalbúmið
Við erum búin að hafa það mjög gott um páskana... við fórum á nesk á fimmtudaginn og gistum í tvær nætur á Ekrunni. Á föstudeginum fórum við aðeins inn í sumarbústað, það er svo dásamlegur staður!!

Kíktum svo aðeins upp á skíðasvæði, það var hellingur af fólki þar á skíðum. Um kvöldið var svo boðið til hátíðarkvöldverðar á Melagötunni og mætti þar fjöldi manns. Kalkúnninn var rosalega góður! (ég hef aldrei smakkað svoliss áður!).


Á laugardeginum fórum við í stuttan jeppatúr með Heiðari, Marioline, Viktor og Daníel.. við fórum upp á Vöðlavíkurheiði og komum niður rétt fyrir innan Karlsskála, við keyrðum svo út að Karlsskála og snérum þar við. Ég og Marioline tókum við bílstjóraembættinu þar og keyrðum heim  
 
Við vorum svo komin á borgó um kvöldmatarleytið, beint í fiskisúpuna hennar mömmu. Í morgun (páskadag) fórum ég, pabbi og Pálmi í smá morgungöngu, löbbuðum niður á Björg og þaðan niður að Ósi og fórum svo innfyrir Álfaborgina.

Pabbi og Pálmi fóru svo smá rúnt inn í Afrétt til að kanna færð og snjóalög þar. Meðan sátum við mamma heima og höfðum það gott

Endilega kíkið í myndaalbúmið og skoðið myndirnar.. þær segja meira en mörg orð.. ég ætla að halda áfram að borða páskaeggið mitt.. þetta er eini dagurinn á árinu sem maður má borða endalaust af súkkulaði og maður verður að nýta sér það

Skrifað 23.3.2008 kl. 20:54 af Erlu

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

11.3.2008

Hvað er í gangi???

Af hverju nenni ég ekki að blogga? af hverju gerist ekkert merkilegt svo ég geti bloggað?? Maður myndi nú ætla að maður hefði meiri tíma og eikkað skemmtilegt og markvert myndi gerast í lífi manns þegar maður er búinn með skólann.. ekki það að ég hafi ekki  nægan tíma ;) ég bara veit ekki hvað þetta er.. en ég ætla að koma með nokkra punkta úr því sem gerst hefur í lífi mínu síðan ég bloggaði síðast (sem er rosalega langt síðan og eflaust gleymi ég einhverju)
  • Fyrir tveimur helgum síðan fór Pálmi í langa jeppaferð en ég fór heim á Boggann til mömmu og pabba. Myndir úr ferðinni hans Pálma er hægt að finna inn á www.f4x4.is
  • Næsta vika leið á markverðra atburða.
  • Svo kom önnur helgi og við fórum til Akureyrar með VGK-Hönnun. Vorum á hóteli í tvær nætur (ég elska að vera á hóteli!!). Við fórum í bíó, leikhús og út að borða. Ég, Áslaug og Hafrún Katla þræddum búðir meðan Ari og Pálmi fóru með krakkana á skíði. Mér finnst Akureyri dásamlegur staður.
  • Svo kom önnur vika og við bara unnum og sváfum þess á milli.
  • Nú og enn var komin helgi (tíminn er svo fljótur að líða!!). Pálmi fór í Viðfjörð með unglingadeild björgunarsveitarinnar en ég var bara heima að slappa af og njóta þess að gera ekki neitt.
  • Næsta helgi er komin með neitt ákveðið plan.

En svona í tilefni að því að ég blogga í dag þá vil ég óska Hörpu litlu frænku minni innilega til hamingju með afmælið í dag 

Mynd númer 20
Hérna er Harpa á góðri stundu í heita pottinum "okkar" í Kjarnaskógi.

Skrifað 11.3.2008 kl. 19:52 af Erlu

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 52
Gestir í dag: 15
Flettingar í gær: 49
Gestir í gær: 12
Samtals flettingar: 118552
Samtals gestir: 42280
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 21:14:32