|
Eldra efni Tenglar
|
Blogg23.6.2008Sólstöðugangan 2008Eftir vinnu á föstudaginn hringdi aldraður faðir minn í mig og spurði hvort að við værum ekki búin að binda á okkur gönguskóna til að labba til hans í Loðmundarfjörð! Mér fannst hann nú frekar bjartsýnn þar sem klukkan var rúmlega 4 og við búin að ákveða að fara ekki í lommann. En ég hringi í Pálma og hann er til í að fara þannig að það er ákveðið! Við fórum frá Reyðarfirði kl 20! Þetta yrði bara miðnæturganga þar sem að það var jú lengsti dagur ársins! Við lögðum af stað frá bílum okkar, upp í Krossmeladæld, kl: 22.35.
Við vorum svo komin niður að hjólinu (sem var í Oddunum) kl. 02:15 og þá átti eftir að keyra alla leið heim í Sævarenda. Þegar þangað var komið var ég nær dauða en lífi úr kulda og þurfti öldruð móðir mín að aðstoða mig úr blauta dressinu, en líf komist í puttana á mér eftir hálfa klukkustund! Þegar við komum heim beið okkar hlaðið borð af alls konar kræsingum og haldiði ekki að foreldrar mínir hafi ekki gengið úr rúmi fyrir okkur og sváfu þau sjálf í stofunni! Svo var farið í þessa líka langþráðu og góðu sturtu og farið að sofa rúmlega 4. Á laugardeginum var sofið út. Svo rölti ég með mömmu og pabba niður í varp en Pálmi fór á skytterí með Gísla Eysteini.
17.6.2008Nú verða sagðar fréttir úr Lommanum :)Á sunnudaginn gerði Pétur Örn sér lítið fyrir og labbaði yfir Hjálmadalsheiði, yfir í Loðmundarfjörð til að líta á útigangsmennina sem hafa verið þar síðan í byrjun maí. Að hans sögn leit fólkið vel út og hljóp ekki í felur þó að gest hafi borið að garði sem segir okkur það að þau eru ekki enn búin að gleyma hvernig annað fólk lítur út og hegðar sér
11.6.2008Fullt af nýjum myndumJú, ég hef komist að því að þeir sem lesa þessa síðu og þora að kommenta, þeir eru sammála mér! KETTIR ERU VIÐBJÓÐUR! þar með hafið þið það ![]() Núna eigið þið ekki að eyða tímanum í að lesa eikkað sem ég skrifa hérna heldur skoða allar myndirnar sem ég var að setja inn Meðal annars eru myndir úr jeppaferðinni sem við fórum í apríl, frá sjómannadeginum og frá Agli rauða (reyndar vantar enn hluta af þeim en þær koma síðar).Njótið myndanna, þær segja meira en mörg orð
5.6.2008Kettir eru viðbjóður!Ef það er eitthvað sem fer í taugarnar á mér þá eru það kettir sem eru hérna útum allt!! af hverju í andskotanum (afsakið orðbragðið) er ekki lausaganga katta bönnuð alveg eins og lausaganga hunda!!! ég hef aldrei getað skilið þetta!! þessi ógeð eru mígandi og skítandi alls staðar annars staðar en heima hjá sér, sem er náttlega mjög gott fyrir eigandann!! en ef það sést hundaskítur einhver staðar sem gleymst hefur að verka verður allt brjálað! þetta er alveg stórmerkilegt! ekki nóg með að þessi kvikindi séu mígandi og skítandi alls staðar úti heldur koma þau inn um næsta glugga eins og þeir eigi bara heim þar! Mér er skapi næst að setja minkagildrur út um allt í garðinum mínum og ná þessu skepnum. Og ég er næstum því viss um að það er ekki nema brot af þeim eru eru merktir! Þar sem ég reyndi í flestum tilfellum að gera eitthvað slæmt við þessi dýr þegar þau nálgast mig hef ég ekki tekið eftir því hvort að þau séu með ól eða ekki.. Það er alveg hægt að venja ketti á að vera bundnir úti í bandi eða fara með þau í gönguferð!! Svo eru þeir drepandi fugla og unga í tíma og ótíma! það væri eitthvað sagt ef blessuð börnin okkar færu að stunda þetta.. en þetta er bara fyndið af því að kisi greyið gerði þetta og hann var svo gáfaður að færa eigandanum sínum dauðan fugl! ætli vesalings barnið yrði ekki hítt duglega og húðskammað fyrir að koma með svona til foreldra sinna! 3.6.2008???Er fólk að gefast upp á mér?? á ég að halda áfram að blogga?? Endilega tjáið ykkur. Flettingar í dag: 45 Gestir í dag: 11 Flettingar í gær: 220 Gestir í gær: 31 Samtals flettingar: 117888 Samtals gestir: 42134 Tölur uppfærðar: 12.3.2010 14:56:06 |
...Erla & Pálmi...




Svo var farið heim í kaffi og að sjálfsögðu lagði maður sig eftir það (maður leggur sig alltaf eftir hverja einustu máltíð á Sævarenda
) Eftir legginn fóru ég, pabbi og Pálmi aftur niður í varp og röltum þar einn hring. 
Rúmlega ellefu um kvöldið sátum við í eldhúsinu og vorum að kjafta, ég sat við gluggann og var nýlega búin að vera horfa út í varp og svona (alltaf á kíkkinu).. ég held svo áfram að kjafta en lít út um gluggann og sé þá að skyndilega stekkur allur fuglinn sem sat hinu megin við ána í burtu, ég segi pabba að þetta hafi verið eikkað skrítið og hvað haldið þið? jújú þarna var tófan komin á ferðina! pabbi stekkur af stað út að árbakkanum, hendir sér þar niður og skýtur tveimur skotum á tófuna en hittir í hvorugt skipti (það fannst Gísla Eysteini ekki leiðinlegt!) Strákarnir röltu svo upp í hóla til að kíkja eftir tófunni en við mamma fórum að sofa. 






Meðal annars eru myndir úr jeppaferðinni sem við fórum í apríl, frá sjómannadeginum og frá Agli rauða (reyndar vantar enn hluta af þeim en þær koma síðar).