Blogg

29.9.2008

Síðasta helgin í Lommanum 2008

Fórum í Lommann eftir vinnu á föstudaginn. Síðasta vinnuhelgin á Sævarenda var að renna upp. Klára þurfti að steypa stoðir í kjallarann svo að húsið myndi standa í vetur. Við kláruðum að steypa allt á laugardeginum. Ég og mamma sáum um að hræra steypuna, svo komu reyndar gestir þannig að mamma fór inn en ég sá um þetta og stóð mig með prýði! Strákarnir höfðu varla undan að steypa í kjallaranum emoticon  En það var ekki bara verið að steypa á Sævarenda því að 15 manna lið var inn hjá Klyppstað að steypa þar undirstöður undir nýjan ferðafélagsskála sem mun rísa þar næsta sumar. Svo var líka verið að smala og gat ég fengið að hjálpa aðeins til við það! Það er eiginlega ekki hægt að segja annað en það hafi gengið mjög illa!! Kindurnar hans Eyjólfs á Selstöðum eru mjög hræddar við girðingar enda ekki vanar þeim! Það var mjög gaman að standa heima á Sævarenda og fylgjast með! Svo þegar kindurnar fóru að streyma heim að Sævarenda ákváðum við Pálmi að stökkva á móti þeim og reka þær til baka.. en til að gera langa sögu stutt á misstu þeir eikkað í kringum 150 kindur en náðu 9!!!! emoticon  Settist aðeins hjá Þresti frænda mínum (sem var að smala) og horfði með honum á allar rollurnar sem voru upp í fjalli (en áttu að vera í girðingunni!) og spurði hann að því hvort það væri ekki svekkjandi að horfa upp á þetta þegar maður væri búinn að vera smala allan daginn! En svo fóru þeir reyndar aftur upp í fjall og náðu einhverjum rollum.. ég myndi giska á ca. 30.
En aftur að Sævarenda! Jóna Kata og Benti komu til okkar um 5 leytið á laugardeginum og rétt náðu í endann á steypuvinnunni emoticon  Móðir grillaði svo glæný lambalæri sem runnu vel niður eftir erfiðan dag emoticon
Sunnudagurinn var svo notaður í að sýna gestunum fjörðinn fagra og klára að gera klárt á Sævarenda fyrir veturinn. Ingólfur og Helga birtust svo eftir hádegið og þau fengu að taka þátt í skoðunarferðunum emoticon  Við keyrðum inn hjá Klyppstað til að skoða framkvæmdir helgarinnar, fórum svo til kirkju en því miður var hún læst. Okkur var svo boðið í kaffi inn á Úlfstöðum, Oddur var búinn að hita kaffi en einnig var boðið upp á bjór, viský og koníak! Við kíktum svo við í Stakkahlíð hjá Bernd og fengum að sjá myndirnar sem hann er búinn að mála í haust. Ég hef alltaf haldið því fram að þetta séu vatnslitaklessur á blaði en þegar maður sér hvernig hann gerir þetta og heyrir hann lýsa því sem hann er að gera þá sér maður að þetta er ekki svona einfalt. Ég sá alveg slatta af myndum sem ég myndi vilja eignast!
 
Eftir listaverkasýninguna fórum við upp í Hraundal og keyrðum veginn þar á enda. Á leiðinni heim þurftum við að koma við á Nesi til að skrúfa fyrir vatnið og setja hlera fyrir gluggana.

Frábær helgi í alla staði og það verður gaman að koma aftur í Lommann á næsta ári emoticon

Skrifað 29.9.2008 kl. 19:05 af Erlu

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

15.9.2008

Var að setja inn tvö ný myndaalbúm. Annað er af hreindýraveiði þeirra bræðra sem var að nálgast það að verða sagan endalausa! Taldi ekki allan dagana sem fóru í að leita, en þeir voru þó nokkrir! En að lokum náðu þér stórri og fallegri belju sem nú er komin í frystikistuna á Blómsturvöllum emoticon

Nú svo fórum við á Borgó á laugardaginn. Þegar við komum þangað voru kindurnar úr Brúnavíkinni komnar niður í Hólana þannig að við fengum aðeins að vera með en fórum svo í réttirnar emoticon


Á sunnudaginn vorum við dregin með í að smala Hafnarfjallið (af því að smalarnir misstu svo mikið af fé þar daginn áður) en það gekk nú vel til að byrja með... en bara til að byrja með!!! Við fórum á bílnum upp í Hafnarfjallið, Helga labbaði inneftir en ég, pabbi og Pálmi fórum yfir í Hafnarbotna og út á Hafnarbjargið. Rollurnar runnu í rólegheitum niður en svo endaði þetta með því að Helga var komin inn undir Hofstrandarskarð og missti rollurnar þar yfir!! Pabbi og Pálmi náðu hins vegar að koma með 11 rollur inn í girðingu, en ég og Maggi vorum í fyrirstöðu niður við girðingu svo við myndum ekki missa þær út í Vog. Ég er ekki frá því að rollurnar í Höfn séu með þeim þrjóskari og leiðinlegri rollum sem til eru! og ég er ekki ein um að finnast það emoticon 

En já.. endilega kíkið á myndirnar og hættið að lesa þetta bull í mér.. hverjum leiðist ekki að tala um rollur???!!! 

Skrifað 15.9.2008 kl. 21:15 af Erlu

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

7.9.2008

Mission complete

Loksins, loksins, loksins! Mér tókst þetta! Markmiði mínu er náð! Núna get ég slappað af, setið með tærnar upp í loft fyrir framan sjónvarpið og beðið eftir að jólin komi! Ég ætla að fara huga að því að panta mér jólatré til að vera örugg um að þetta komi að einhverjum notum..

En annars skellti ég mér á Borgó í gær og þá ákváðu foreldrar mínir að skella sér í Lommann þannig að ég var alein heima! En þrátt fyrir það þá var þetta mjög góð helgi :)  Á laugardaginn kíkti ég í Sólgarð til að sjá eitt af fallegri börnum sem fæðst hafa! Hilmar Ingi og Krissa eru stödd á Bogganum. Ég fékk að hnoðast alveg helling með hann og fannst það ekkert leiðinlegt (merkilegt nokk þá held ég að hann hafi verið bara nokkuð sáttur við mig!).


Á sunnudeginum reif ég mig á lappir um 9 leytið, veðrið var geggjað!! 13 stiga hiti, algjörlega heiðskírt og glampandi sól! er hægt að biðja um eitthvað betra? Ég byrjaði á því að labba inn í Brandspalarétt, þar var verið að draga í sundur fé sem verið var að smala í Húsavík á laugardeginum. Það er alltaf gaman að fara í réttir! Ég hef ekki farið í mörg ár og stemmningin var alveg eins og í gamla daga. Ég stóð nú samt bara inn í einum dilkinum, hefði samt alveg verið til í að draga aðeins ef ég hefði verið í þannig galla, en það kemur að því ;)
 
Nú, það var ekki hægt að fara bara inn og gera ekki neitt þegar ég fór heim úr réttunum þannig að ég ákvað að skella mér á hestbak! Ég elska að fara á hestbak í svona veðri (það er reyndar ALLTAF dásamlegt að fara á hestbak). Að fara alein á hestbak eitthvað út í buskann og njóta náttúrunnar, það er yndislegt. Við Þytur fórum upp í hóla og nutum þess að rölta þar um og hann var ótrúlega þolinmóður við mig, ég á nefnilega mjög erfitt með að halda áfram þegar ég sé svona svakalegt magn af krækiberjum í kringum mig! úff.. en við komumst aftur heim og að sjálfsögðu fór ég beint upp í Sólgarð til að knúsa Hilmar Inga áður en hann færi aftur til Reykjavíkur.



Meira var það ekki að sinni, var að skella inn slatta af myndum sem ég tók í dag. Njótið þeirra.

Skrifað 7.9.2008 kl. 21:34 af Erlu

Bein slóð á færslu

9 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 49
Gestir í gær: 12
Samtals flettingar: 118503
Samtals gestir: 42267
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 03:22:53