Blogg

27.1.2009

Sæl veriði

Nú erum við komin heim í heiðardalinn (eins og hann Afi minn orðar það) og allt gengur samkvæmt áætlun. Nú er bara að halda sér við efnið og vera duglegur að hreyfa sig og þá ætti maður að vera orðinn góður á nó tæm (eða allavega áður en langt um líður).

Erla er komin með prjónadellu og prjónar bara og prjónar, en ég er mjög sáttur við það vegna þess að ég ætla að panta hjá henni kragaháa ullarpeysu þegar hún verður orðin ermafær (á bara eftir að segja henni það). Í augnablikinu er það eitthvað forláta vesti sem hún er að prjóna á sig, en hún setur ermarnar eitthvað fyrir sig ennþá.

Þangað til næst...

Skrifað 27.1.2009 kl. 20:47 af Pálma

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

25.1.2009

Sunnudagur til sælu!

Vááá hvað tíminn er fljótur að líða.. mér finnst eins og við séum nýkomin hingað..  en sem betur fer er þessu að ljúka.. þ.e.a.s. sjúkrahúsvistinni. Í dag hafa farið fram strangar æfingar.. Pálmi er búinn að labba upp og niður stiga, nokkrar ferðir, og gengur það bara nokkuð vel. Hann kemst einn og óstuddur á klósettið (sem er ca. 4 metra frá rúminu hans) en hann þarf að nota göngugrindina í lengri ferðir. Aðalástæðan fyrir notkun hennar er sú að hann svimar svo af morfíntöflunum sem hann fær, en það er verið að prófa að gefa honum parkódín forte í staðinn. En við reiknum með því að Pálmi verði útskrifaður á morgun og er þá planið að gista eina nótt hérna í bænum og fara austur á þriðjudaginn. Ég verð að fara komast í vinnuna mína, ég skil bara ekki hvernig þær komast af án mín á leikskólanum emoticon
Ég fór í Hagkaup í gær og verlslaði mér lopa og prjóna!! já, það er ekkert annað.. mín er bara byrjuð að prjóna sér vesti.. það er spurning hvenær það verður búið emoticon
En fleira var það ekki í fréttum í kvöld, fréttir verða næst sagðar einhvern tímann á morgun emoticon

Skrifað 25.1.2009 kl. 21:04 af Erlu

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

24.1.2009

Mikið um að vera á Lansanum í dag

Já það var heldur betur líf og fjör á deild 13D í dag. Jonni kom í heimsókn og leysti Erlu af sem yfirhjúkka á meðan hún skrapp bæjarferð. Jón Einar leit líka við og ræddum við um heima og geima.

Jonni og ég

Anna og Bobba frænkur stoppuðu líka en þær voru á þorrablóti hjá Ásatrúarfélaginu í gærkvöldi ásamt Jonna og Hödda. Ekki slapp ég við nudd í þetta skiptið (emoticon) en eftir það gekk mér mun betur að hlæja og ég gat andað dýpra. Munur að eiga svona frænku!

Einar verðandi hjúkka, Bobba og Anna

Einar frændi minn rak líka inn nefið eftir 10km skíðagöngu í bláfjöllum í hríðarbyl ásamt félögum í HSSK. Stuð hjá þeim félögum. Hann tók nokkrar myndir og skutlaði svo Jonna heim eftir erfiðan vinnudag á sjúkrahúsinu.
Núna sitjum við Erla ein eftir í kotinu, ég að læra á nýju myndavélina og Erla að prjóna og hugsa heim á Boggann þar sem þorrablót Borgfirðinga fer fram með frábærum skemmtiatriðum og besta hákarli á landinu... við verðum að láta okkur nægja að smjatta á þorramat yfir myndbandinu einhverntíman.

Erla og ég
Það gekk mun betur að ganga og hreyfa sig í dag, en ég fór 2svar fram á gang svo að en nú er farið að glitta í endalok sjúkrahúsvistarinnar en ég fer ekki út fyrr en ég get gengið eitthvað óstuddur.
Ég vil líka þakka ykkur öllum fyrir kveðjurnar, þær eru mér mikils virði.

Lifið heil

Skrifað 24.1.2009 kl. 21:33 af Pálma

Bein slóð á færslu

8 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.1.2009

Dagur 4 :)

Kæri sáli.. Þá er dagur fjögur að kveldi komin og allt við það sama hérna á landsspítalanum. Búið er að taka legginn úr bakinu á Pálma og vilja hjúkkurnar líka taka þvaglegginn en Pálmi vill fá að hafa hann alla vega þangað til hans kemst sjálfur á klósettið. Læknarnir vilja að hann fari út á morgun en ég , yfirhjúkkan sjálf, vil ekki taka það í mál! Hvernig er hægt að henda honum út þegar hann getur ekki einu sinni gengið 3 metra!! Hvað þá gengið hjálparlaust?? Það hefur ekki gengið alveg nógu vel að ganga í dag.. í morgun settist hann bara á rúmstokkinn, í næstu ferð var nærri liðið yfir hann þannig að við þurftum að setja undir hann stól til að hann gæti hvílt sig á leiðinni (og þá erum við að tala um að hann var komin meter frá rúminu!) en núna áðan þurfti hann að gera stórt þannig að ég og önnur hjúkka gátum stutt hann á salernið. Þannig að það er spurning hvort að þvagleggurinn verði ekki bara tekinn á morgun og hann fái bara aðstoð til að komast á klóið. En nóg komið af salernisferðum..
Í dag kom Anna frænka í Danmörku í heimsókn, það var rosalega gaman að fá hana! Erla og Bergrún kíktu til okkar og svo komu Eyddi og Ingvar.. Í gær komu Jonni og Pálína :) Það er sko nóg að gera í gestamóttökunni sem er bara gaman! Ég reyndi að vera hér meira og minna allan daginn, þannig að ég held að Pálmi hafi ekki tíma til að láta sér leiðast ;)


Anna frænka og Pálmi að ræða málin :)

Í gærkvöldi skildi ég reyndar Pálma greyið eftir eina og fór að hitta svísurnar sem voru með mér í Kennó! OOOO það var svo gaman!! mér leið bara eins og ég hefði aldrei farið austur og við værum bara enn í skólanum ;) Það var frábært að hitta þær og vonandi getum við gert þetta alltaf þegar á kem suður ;)

Ekki vantaði nú kræsingarnar frekar en vanalega ;)
Nú að sjálfsögðu mundi mín eftir bóndadeginum og gaf sínum bónda ægilega fína flíspeysu, 66 norður ;) Ég klúðri því að taka mynd af honum í dag þegar hann mátaði hana en vonandi á hann eftir að fara í hana einhvern tímann aftur þannig að það verða fleiri tækifæri til að taka myndir af honum í henni.

En við kveðjum að sinni í dag og þökkum kærlega fyrir allar kveðjurnar sem við höfum fengið hérna.. það er frábært að sjá hvað þið eruð duglega að kommenta.. Pálmi brosir út að eyrum í hvert skipti sem hann sér nýtt komment ;) hehe. þarf ekki mikið til að gleðja mann þegar maður er á sjúkrahúsi ;) 

Skrifað 23.1.2009 kl. 19:19 af Erlu

Bein slóð á færslu

11 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.1.2009

Yfirhjúkkan ritar ;)

Góðan daginn kæru vinir og ættingjar til sjávar og sveita!
Á Landsspítalanum er alltaf  líf og fjör! Sjúklingurinn minn braggast ágætlega og tekur gríðarlegum framförum! Hann er farin að geta lagst aðeins á hliðina, í ca. 2 mín. sem er mikil framför! Hann er rifinn á fætur ca. fjórum sinnum á dag og látinn hlaupa um gangana.. hjúkkurnar hafa varla við honum ;) hehe.. nei það er ljótt að vera gera grín af svona.. hann labbar ca. 1 til 2 metra í hvert sinn. Það er búið að minnka deyfilyfin heilmikið, þegar hann kom fyrst úr aðgerðinni þá var honum gefið 7 mL/hr en núna er búið að minnka það niður í 3 mL/hr. En hann fær eina góða verkjalyfjasprautu áður en hann er rifinn upp úr rúminu en samt er hann kvalinn þegar hann stendur upp, finnur mikið á skurðsvæðinu, eða sem sagt þar sem æxlið góða var.
En eins og ég sagði hérna í gær þá gleymdist myndavélaleiðslan fyrir austan þannig að við brugðum á það ráð að kaupa okkur bara nýja (og notaða) myndavél! Við keyptum sem sagt Canon EOS 400D (fyrir aula eins og mig þá er það svona "stór" myndavél) og þar fylgdi með leiðsla þannig að núna get ég sett inn myndir héðan af sjúklingnum mínum :) Ég er búin að mynda skurðinn og bakið og meira að segja tók ég mynd meðan hjúkkan var að sprauta hann!! já! ég horfði á það og það leið ekki yfir mig.. hjúkkan heldur núna að ég geti sko pottþétt orðið hjúkrunarfræðingur! hehe..  en ég ætla að láta hérna fylgja nokkrar myndir af sjúklingnum mínum, svo eru fleiri í albúminu.


Flottasti sjúklingurinn á Landsspítalanum

Pálmi og Bjarney að ræða málin áður en hún missir stjórnina á honum;)

Lengsta gangan til þessa, tveggja metra maraþon!

Þetta er sko alvöru skurður eins og sjá má! En takið eftir hvað sjúklingurinn minn ber sig vel emoticon


Skrifað 22.1.2009 kl. 15:04 af Erlu

Bein slóð á færslu

10 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.1.2009

Það er kominn fimmtudagsmorgun

Skoða nánar

21.1.2009

Nú verða sagðar fréttir!

Skoða nánar

21.1.2009

Meiri fréttir

Skoða nánar

20.1.2009

Smá fréttir

Skoða nánar

17.1.2009

Hvað er í gangi??

Skoða nánar

9.1.2009

Jólin farin..

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 27
Gestir í dag: 9
Flettingar í gær: 49
Gestir í gær: 12
Samtals flettingar: 118527
Samtals gestir: 42274
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 15:22:29