|
Eldra efni Tenglar
|
Blogg19.5.2009LoðmundarfjörðurVið erum komin heim frá Loðmundarfirði. Það var dásamlegt að vera þar í eina viku og þurfa ekki að hafa áhyggjur af einu eða neinu og geta notið þess að vera úti í náttúrunni. Við hjálpuðum mömmu og pabba að koma varpinu í gang, gera allt klárt þannig að kollurnar geti farið að verpa. Settum út öll flöggin, settum upp girðinguna og settum út ca. 90 ný hreiður. ![]() En við vorum ekki bara að vinna allan daginn, dagurinn leið nokkurn veginn á þennan hátt: Við borðuðum morgunmat um 9 fórum svo út og unnum fram að hádegi (oft var reyndar morgunkaffi þarna á milli). Eftir hádegismatinn var alltaf lagt sig, í flestum tilfellum sofnaði Erla og svaf vel og lengi! Eftir legginn var stundum unnið í smá stund áður en að kom að kaffinu. Eftir kaffið var lítið unnið fram að kvöldmat, eftir hann var stundum brasað eikkað aðeins eða labbað út á sand. ![]() Þetta var dagurinn í hnotskurn ![]() Við komum svo heim á laugardeginum, fengum far með Birni Roth og Bernt Koberling til Seyðisfjarðar (björgunarsveitin náði í okkur á bát). Fórum svo með þeim í Egs. á eldgömlum Land rover (1972) og Sveina og Pétur skutluðu okkur heim á Borgó. ![]() Var að setja inn fullt af myndum sem segja meira en mörg orð :) ![]() Flettingar í dag: 25 Gestir í dag: 7 Flettingar í gær: 49 Gestir í gær: 12 Samtals flettingar: 118525 Samtals gestir: 42272 Tölur uppfærðar: 21.3.2010 14:24:44 |
...Erla & Pálmi...






