|
Eldra efni Tenglar
|
Blogg26.8.2009Nýr sófi!Ég og sambýlismaður minn vorum að versla okkur sófa, ég legg ekki meira á ykkur! ![]() ![]() Svo er spurning hvort að Pálmi tolli eitthvað heima þegar hann fær að sitja í nýja sófanum ;) 18.8.2009Æðisleg helgi.Við áttum stórkostlega helgi með Hörpu, Hlyn, Jonna, Pálínu, Agnesi og Hödda. Við brunuðum af stað frá Reyðarfirði eftir hádegi á föstudaginn og hittum alla hina í Þakgili (rétt hjá Vík). Þar gistum við fyrstu nóttina, við prófuðum að sofa í bílnum okkar og það var bara rosalega fínt :) Daginn eftir keyrðum við upp að jöklinum og löbbuðum upp á Mælifell, þetta svæði er hrikalega flott og landslagið er hrikalegt! ![]() Þegar við komum niður fórum við í sund á Vík og borðuðum svo æðislegan mat á Geirlandi á Kirkjubæjarklaustri, þar bjó Pálmi þegar hann var að vinna á Klaustri. ![]() Eftir matinn fórum við á flugeldasýningu á Jökulsárlóni, rosalega flott sýning hjá Björgunarfélaginu á Hornafirði! ![]() Við gistum í Skaftafelli og á sunnudaginn löbbuðum við upp að Svartafossi. Við héldum svo hver til sinna heima um hádegi á sunnudeginum, allir kátir og glaðir eftir góða helgi! Kæru vinir, takk fyrir frábæra helgi og það er alveg á hreinu að við verðum að gera þetta aftur, og helst fljótlega! p.s. var að setja inn myndir í Bræðslualbúmið og nýtt albúm fyrir verslunarmannahelgina. ![]() 12.8.2009Mér finnst rigningin góð! 2.8.2009Fullt að nýjum myndum!Var að setja inn myndir alveg frá því í júní!! ![]() Ættarmót hjá Pálma í Hallormsstað! ![]() Fullt af myndum af Nóel Darra ! ![]() Kayakferð Óskars, Pálma, Steina og Ara. Frá Selfljótinu til Loðmundarfjarðar. ![]() Ferð í Lommann þar sem að Gísli hringfari kom við og Pálmi og Ingólfur réru með honum til Nesk. ![]() Myndir sem teknar voru þegar turninn var settur á Sævarenda.. ![]() Myndir sem við tókum í ferðalaginu okkar fyrir vestan. Takið ykkur tíma í að skoða þetta því að þetta eru margar myndir!! ![]() Flettingar í dag: 18 Gestir í dag: 6 Flettingar í gær: 60 Gestir í gær: 19 Samtals flettingar: 118578 Samtals gestir: 42290 Tölur uppfærðar: 22.3.2010 09:39:36 |
...Erla & Pálmi...




Daginn eftir keyrðum við upp að jöklinum og löbbuðum upp á Mælifell, þetta svæði er hrikalega flott og landslagið er hrikalegt! 










